Söfnun!

Ég heiti María og ætla að segja ykkur frá vinkonu minni Soffíu sem gengur í gegnum erfitt tímabil þessa dagana.
 
Soffía greindist með æxli í höfði í byrjun Ágústmánaðar, Soffía og börn hennar þrjú voru í sumarbústað austur á landi. Og þá fór meinið að gera vart við sig með sjónvsiðsskerðingu á vinstra auga, svima og ljósfælni. Þrátt fyrir öll þessi einkenni tókst henni til allrar guðs lukku að koma sér og börnunum heim heilu og höldnu.Eftir langan akstur. Þegar heim var komið fóru einkennin versnandi og á endanum fór Soffía uppá bráðavakt,gerðar voru rannsóknir og höfuðmynd tekin. Á þeirri mynd sáu læknarnir eitthvað sem krafðist frekari athugunar. Daginn eftir var hún send í segulóm myndatöku. og kom í ljós að um æxli væri að ræða. Aðeins viku eftir greiningu gekkst soffía undir stóra aðgerð sem tók 7 tíma, aðgerðin gekk vel en einungis var hægt að fjarlægja helminginn af æxlinu. Sýni sem tekin voru sýndu að næsta skref yrði geislameðferð og hefst hún að viku liðinni, Soffía er enn með skert sjónsvið og ljós og minnsti hávaði fara illa í hana, Soffía á 3 börn, 21. ára dóttur og 2 syni 6 ára og 9 mánaða. Maður hennar og faðir barna hennar lést fyrir ári síðan í bílslysi og hét hann Jóhannes Örn. Soffía sem er og verður óvinnufær um óákveðinn tíma, Þar sem íbúð hennar er hluti af launum hennar í starfi sínu sem húsvörður og stendur fjölskyldan frammi fyrir húsnæðis og fjárhagsáhyggjum. Soffía er enn á spítala og verður þar um óákveðinn tíma

Stofnaður hefur verið reikningur til styrktar fjölskyldunni og er hann sem hér segir

 

Reikningsnúmer: 0140-05-14321

kennitala: 161069-3619

 


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Baráttukveðjur til Soffíu vinkonu þinnar, Guð blessi hana lækni og varðveiti

Guðrún Sæmundsdóttir, 3.9.2008 kl. 13:18

2 Smámynd: María Þorláksdóttir

Ég var að laga kennitöluna hennar Soffíu endirinn á henni er 3619

María Þorláksdóttir, 3.9.2008 kl. 16:33

3 identicon

Jæja mín komin með síðu loksins! Til hamingju með það og svo bara vera dugleg að blogga.

Þetta er hrykalegt með dömuna og vona ég svo ynnilega að hún nái sér að fullu.

Heyrumst

kveðjur frá Illinois

Rakel Johnson (IP-tala skráð) 4.9.2008 kl. 13:02

4 Smámynd: Halla Rut

Hugur minn er hjá vinkonu þinni.

Sendi henni og þér mínar bestu kveðjur.

Halla Rut , 6.9.2008 kl. 18:31

5 identicon

Takk fyrir kveðjurnar stelpur eg læt hana Soffíu vita að þið hugsið til hennar kv María

María Þorláksdóttir (IP-tala skráð) 6.9.2008 kl. 21:34

6 Smámynd: Halla Rut

Ég setti 1000 inn á hana. Ég veit að það er ekki mikið en vildi samt sýna lit.

Halla Rut , 6.9.2008 kl. 22:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband